Sport

Essien verður dýr

Forráðamenn frönsku meistaranna í Lyon segja að Chelsea verði að kafa enn dýpra í budduna ef þeir ætli sér að landa hinum eftirsótta Michael Essien, en segjast jafnframt vilja gera allt sem í þeirra valdi stendur til að halda í miðjumanninn unga. "Chelsea er eina liðið sem hefur gert staðfest tilboð í hann, en þeir eru ekki á réttri leið miðað við tilboðið sem þeir gerðu, því hann á eftir að kosta þá miklu, miklu meira en það. Essien er einn besti leikmaður Evrópu í dag og ef við miðum við hvað Chelsea borgaði fyrir Drogba á sínum tíma, væri það mun nær því sem við viljum fá fyrir Essien," sagði stjórnarformaður Lyon, en þá er hann að meina tölu nær 25 milljónum punda, í stað þeirra 16 sem Chelsea hefur boðið í hann.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×