Sport

Fylkir og ÍBV í vandræðum í bikar

Fylkir og ÍBV lentu í miklum vandræðum með að tryggja sér sæti í 16 liða úrslitum VISA-bikarkeppni karla í knattspyrnu í gær. Fylkir sigraði KS 4-2 í framlengdum leik. Björgólfur Takefusa skoraði tvö marka Fylkis úr vítaspyrnum. Í Ólafsfirði tryggði Orri Rúnarsson Leiftri/Dalvík framlengingu þegar hann skoraði á síðustu mínútu leiksins. Bjarni Hólm Aðalsteinsson skoraði sigurmark ÍBV í framlengingu. Fram sigraði Fjarðabyggð 2-0 á Eskifirði og KR burstaði Leikni 6-0 þar sem Bjarki Gunnlaugsson skoraði þrennu. Njarðvík vann Völsung 3-2 í framlengdum leik og HK hafði betur í baráttu við Hvíta Riddarann, 5-1, einnig í framlengdum leik. Breiðablik sigraði Víking í Ólafsvík 2-1, KA vann Huginn 4-1 og Þór vann ÍR 2-1. 32 liða úrslitum bikarkeppninnar lýkur í kvöld en þá verða sex leikir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×