Sport

Djurgården efst í Svíþjóð

Djurgården náði í gærkvöldi fjögurra stiga forystu í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar liðið sigraði Helsingborg með fimm mörkum gegn engu. Kári Árnason tók út leikbann í liði Djurgården en Sölvi Geir Ottesen kom ekki við sögu. Djurgården hefur 23 stig en Malmö er í öðru sæti með 19 stig. Elfsborg sigraði Malmö í gærkvöldi 3-1 og Gefle og Landskrona gerðu markalaust jafntefli.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×