Sport

Enska FA enn í vandræðum

Einkaritarinn sem stóð í framhjáhaldi með Sven-Göran Eriksson, lansliðsþjálfara enska knattspyrnulandsliðsins, Faria Alam, heldur áfram að hrista stoðir enska knattspyrnusambandsins. Hún hefur nú ásakað sambandið um ólöglega uppsögn og heldur því fram að hún hafi orðið fyrir barðinu á kynferðislegu áreiti hjá þáverandi yfirmanni sínum hjá sambandinu, David Davies. Alam sem varð heimsfræg þegar hún opinberaði leynileg ástarsambönd við bæði Eriksson og Mark Palios formann enska sambandsins. Davies harðneitar þessum ásökunum en Alam segir einnig að Eriksson hafi beðið sig um að ljúga. Þá sakar hún sambandið einnig um samningsrof og óreglulegar launagreiðslur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×