Sport

Jafnt hjá Þjóðverjum og Argentínu

Þýskaland og Argentína skildu jöfn, 2-2 í álfukeppninni í knattspyrnu nú í kvöld. Liðin eru bæði örugg í undanúrslit og eru jöfn að stigum í A-riðli en Þjóðverjar á toppnum með betri markatölu. Kevin Kuranyi kom Þjóðverjum yfir á 30. mínútu en Juan Román Riquelme jafnaði metin 2 mínútum síðar. Gerald Asamoah kom Þjóðverjum aftur yfir á 51. mínútu en Esteban Cambiasso jafnaði á 74. mínútu. Túnis náði 3. sætinu með því að leggja Ástrala 2-0 einnig í kvöld.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×