Sport

Ólafur skrifar undir hjá Brentford

Ólafur Ingi Skúlason, fyrrum leikmaður Arsenal og fyrirliði 21 árs landsliðsins, skrifar í dag undir tveggja ára samning við enska 2. deildar liðið Brentford. Ólafur Ingi mun hafa náð samkomulagi við Brentford um launaliði samningsins en reiknað er með að hann skrifi undir eftir læknisskoðun í dag. Ólafur er fjórði Íslendingurinn sem leikur með félaginu. Hermann Hreiðarson lék með Brentford 1998 til 1999 og Ívar Ingimarsson var þar í þrjú ár frá 1999 til 2002. Þá var Ólafur Gottskálksson markvörður einnig á mála hjá Brentford.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×