Sport

Man. Utd opnar budduna

Manchester United hefur keypt Suður-Kóreumanninn Park Ji Sung frá PSV Eindhoven á tæpar fimm hundruð miljónir króna. Park gerir samning til fjögurra ára við United. Chelsea hefur fest kaup á spænska bakverðinum Asier Del Horno frá Athletic Bilbao. Sá spænski, sem skrifaði undir þriggja ára samning, kostaði 960 miljónir. Þá hefur Juan Roman Riquelme, Argentíumaðurinn snjalli, skrifað undir fjögurra ára samning við Villareal en hann hefur verið í láni hjá félaginu frá Barcelona í tvö ár.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×