Sport

Brasilía naumlega í undanúrslitin

Brasilía komst naumlega í undanúrslit álfukeppninnar í knattspyrnu í kvöld og mætir þar Þjóðverjum. Heimsmeistararnir gerðu í kvöld 2-2 jafntefli við Japana sem sitja eftir þrátt fyrir að vera jöfn að stigum. Mexíkó er í efsta sæti B-riðls með 7 stig en Brasilíumenn hafna í 2. sæti  með 4 stig, jafnmörg stig og Japan sem er með lakara markahlutfall. Robinho (10) og Ronaldinho (32) skoruðu mörk Brasilímanna sem komust í 2-1 í fyrri hálfleik en fyrir Japana skoruðu Nakamura (27) og Oguro (88). Í hinum leik B-riðils gerðu Mexíkóar markalaust jafntefli við Evrópumeistara Grikkja sem hafna í neðsta sæti með eitt stig. Mexíkó mætir Argentínu í undanúrslitunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×