Viðskipti innlent

Mikil spurn eftir Actavisbréfum

Mikil eftirspurn var eftir bréfum sem í boði voru til kaups í forgangsréttarútboði Actavis Group sem lauk í gær. Alls voru boðnir til sölu rúmlega 543 milljón hlutir á verðinu 38,50 kr. á hlut, eða að andvirði 20,9 miljarðar króna. Alls tóku þátt hluthafar sem eiga 96,1prósent hlutafjár og óskuðu þeir alls eftir nær 795 milljónum hluta að andvirði 30,6 miljarðar króna. Það samsvarar 46,2 prósenta umframáskrift eftir þeim hlutum sem í boði voru eða 9,7 miljörðum meira en var til sölu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×