Sport

Brasilía í úrslitaleikinn

Brasilíumenn leika til úrslita í álfukeppninni í knattspyrnu sem nú stendur yfir í Þýskalandi en þeir lögðu Þjóðverja í undanúrslitaleik í dag, 3-2. Adriano, sóknarmaður Inter Milan skoraði tvö mörk fyrir Brasilíumenn og Ronaldinho eitt úr víti en Lukas Podolski og Michael Ballack fyrir heimamenn sem tvívegis náðu að jafna metin í leiknum. Brasilía mætir annað hvort Argentínu eða Mexíkó í úrslitaleiknum en undanúrslitaleikur þeirra fer fram á morgun sunnudag. Úrslitaleikurinn fer svo fram á miðvikudag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×