Viðskipti innlent

Sögðu sig úr stjórn FL Group

Þrír stjórnarmenn í stjórn FL Group, sem rekur meðal annars Flugleiðir, sögðu sig úr stjórninni í gær vegna óánægju með störf Hannesar Smárasonar stjórnarformanns. Morgunblaðið greinir frá þessu og jafnframt að fjárfestingafélagið Saxsteinn hafi selt fjórðungshlut sinn í FL Group. Þeir sem sögðu sig úr stjórn eru Hreggviður Jónsson, Inga Jóna Þórðardóttir og Árni Oddur Þórðarson. Hluthafafundur verður væntanlega haldinn eftir viku.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×