Viðskipti innlent

BNA komin niður í 4.-5. sætI

Bandaríkin eru komin niður í fjórða til fimmta sæti yfir þýðingarmestu útflutningsmarkaði Íslendinga, samkvæmt samantekt Hagstofunnar. Bretland er þýðingarmesti markaður okkar með 18 prósent, Þýskaland næst með 16 prósent, Holland í þriðja sæti með 13 prósent og svo koma Norðurlönd og Bandaríkin næst með níu prósent hvort svæði. Hins vegar flytjum við lang mest inn frá Norðurlöndum, eða 27 prósent, næst mest frá Þýskalandi og Bandaríkin eru þar í þriðja sæti.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×