Viðskipti innlent

Líkur á að Baugur dragi sig út

Breska blaðið The Guardian segir í morgun að líkur séu á að Baugur dragi sig út úr tilboðshópnum í verslanakeðjuna Somerfield í dag. Aðrir í hópnum hafi þrýst á Baug að draga sig út allt frá því að Ríkislögreglustjóri ákærði Jón Ásgeir Jóhannesson og fimm aðra fyrir lögbrot í síðustu viku. Að minnsta kosti einn úr hópnum ætlar að hætta við tilboðið ef Baugur heldur þátttöku sinni til streitu, að sögn blaðsins. Breskir fjölmiðlar sýna málinu vaxandi áhuga og hafa bæði Guardian og Financial Times sent blaðamenn hingað til lands til fréttaöflunar.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×