Sport

Man. Utd mikilvægara en landsliðið

Alan Smith segist ávallt munu taka Man.Utd fram yfir enska landsliðið, jafnvel þó svo að HM í Þýskalandi sé á næsta leyti. "Ef ég spila alla leiki fyrir Man. Utd á næsta ári, við vinnum allar keppnir og ég kemst ekki enska hópinn sem fer á HM, þá er það ekki eitthvað sem ég græt yfir," segir Smith. "Næsta ár snýst ekki um hvort að ég komist í enska hópinn, þótt mig langi afskaplega mikið til þess, það snýst um að liði Man.Utd gangi sem allra best. Enska liðið er bónus fyrir mig og það skiptir mestu að Man.Utd vegni vel," segir Smith,



Fleiri fréttir

Sjá meira


×