Sport

Zidane hvetur Viera til að fara

Franska goðsögnin, Zinedine Zidane, leikmaður Real Madrid hvetur landa sinn Patrick Viera til að róa á önnur mið. Bæði Juventus og Real Madrid hafa sýnt Viera, sem er 29 ára gamall miðjumaður, mikinn áhuga "Eftir átta ár hjá samafélaginu þá held ég að það sé orðið tímabært fyrir Patrick að breyta til," sagði Zidane í samtali við enska götublaðið Daily Mirror. "Hann er núna á þeim aldri þar sem hátindur ferilsins færist nær. Það yrði gott fyrir hann og gott fyrir okkur í Real Madrid ef hann kæmi til okkar."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×