Sport

Fróði og Pól á leið til landsins

ÍBV mætir B36 á morgun í Vestmannaeyjum í 1.umferð UEFA keppninnar í knattspyrnu. B36 er í efsta sæti færeysku Formúludeildarinnar ásamt Skála og HB. Í liði gestanna eru tveir leikmenn sem íslenskir knattspyrnuáhugamenn kannast við því þeir Fróði Benjaminsen og Pól Torsteinsson hafa báðir leikið hér á landi, Fróði með Fram í fyrra en Pól með Val árið 2000. Á morgun eigast einnig við Keflavík og Ettelbrück frá Luxembourg en leikur fer fram ytra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×