Sport

Kaupir Juventus Vieira í dag?

Luciano Moggi, framkvæmdastjóri Juventus er staddur í London þessa stundina, þar sem hann segist vera að ganga frá kaupum á fyrirliða Arsenal, Patrick Vieira. Moggi segist búast við að ganga frá kaupunum seinnipartinn í dag en tekur jafnframt fram að Juve hafi ekki áhuga á Robert Pires, eins og margir höfðu haldið fram. Þetta verður að teljast nokkuð áfall fyrir stuðningsmenn Arsenal, þar sem Vieira hefur verið kjölfestan í liði þeirra í nær áratug og liðinu mun væntanlega reynast erfitt að fylla skarð hans á miðjunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×