Viðskipti innlent

365 kaupir allt hlutafé Saga film

365 ljósvakamiðlar hafa keypt allt hlutfé í Saga film. Forsvarsmenn 365 segja markmiðið með kaupunum að samþætta kröftuga framleiðslu fyrirtækisins við elsta og öflugasta fyrirtæki landsins á sviði auglýsingagerðar og sjónvarpsþáttaframleiðslu. Eins eru kaupin ætluð til þess að nýta sameinaða krafta til sóknar á innlendum sem erlendum mörkuðum. Jón Þór Hannessson, stofnandi og framkvæmdastjóri Saga film, mun starfa áfram að uppbyggingu fyrirtækisins og stýra útrás þess.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×