Viðskipti innlent

Kaupa 19% í Casino Express Airline

Avion Group, sem er að meirihluta í eigu Magnúsar Þorsteinssonar, og hópur stjórnenda bandaríska leiguflugfélagsins Casino Express Airline, hafa sameinast um að kaupa 19% í flugfélaginu sem sérhæfir sig í að flytja fjárhættuspilara til bæjarins Elko. Casino Express, sem er með höfuðstöðvar í Nevada-ríki í Bandaríkjunum, var stofnað á níunda áratug síðustu aldar en rekstrinum verður haldið áfram í núverandi mynd í samvinnu við spilavítin í Elko. Félagið er með nokkrar Boeing 737 flugvélar í rekstri og er vonast til að það fjölgi í flugvélaflotanum á næstu misserum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×