Sport

Newcastle áfram í Intertoto

Newcastle er komið í 4. umferð Intertotokeppninnar í knattpspyrnu eftir 2-0 sigur á áhugamannaliðinu ZTS Dubnica frá Slóvakíu í dag og samanlagt 5-1. Þetta var síðari viðureign liðanna í 3. umferð keppninnar og skoraði Alan Shearer bæði mörk Newcastle sem mæta Deportivo La Coruña í næstu umferð sem hefst næsta miðvikudag, 27. júlí. Keppt er um þrjú laus sæti í Evrópukeppni félagsliða í Intertoto keppninni og koma þau inn í keppnina 9. ágúst.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×