Sport

Rætt við Essien í þessari viku

Peter, Kenyon, stjórnarformaður Chelsea, segir að félagið muni ræða við Mickael Essien, leikmann Lyon, síðar í þessari viku með hugsanleg félagsskipti í huga. Essien er hugsaður sem arftaki Claude Makalele í liðinu í framtíðiinni og hefur tveimur tilboðum félagsins þegar verið hafnað. Talið er að Chelsea þurfi að reiða fram 32 milljónum punda til að eiga kost á því að semja við leikmanninn. "Við hefðum viljað vera búnir að tryggja okkur hann áður en við lögðum af stað í þessa æfingaferð til Bandaríkjanna en svo framarlega sem hann er kominn fyrir 31. agúst, þá erum við ánægðir. Viðræður ættu að hefjast í þessari viku," segir Kenyon.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×