Sport

Ferguson vísar ósætti á bug

Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Man. Utd, segir ekkert hæft í þeim sögusögnum um að hann og fyrirliðinn Roy Keane hefðu lent í rifrildi. Ferguson og Keane voru sagðir hafa orðið ósáttir eftir að sá síðarnefndi lýsti yfir andúð sinni á þeirri ákvörðun Ferguson um að leyfa fjölskyldum leikmanna að koma með í æfingaferð tl Portúgals fyrir þremur vikum. Keane er sem kunnugt er ekki með félögum sínum í æfingaferð í Asíu um þessar mundir vegna meiðsla en í gær komust sögur á kreik um að hin raunverulega ástæða fyrir fjarveru Keane hafi verið ósættið við Ferguson. Stjórinn vísar þessu algjörlega á bug. "Roy Keane er meiddur, svo einfalt er það," sagði Ferguson í gær. "Það er ekki hægt að ferðast þegar maður er meiddur," bætti hann reiður við.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×