Viðskipti innlent

Tekur lán upp á 47 milljarða

Actavis hefur lokið lánasamningi vegna sambankaláns að upphæð 600 milljónir evra eða um 47 milljarða króna og er lánið til fimm ára. Segir í fréttatilkynningu frá félaginu að mikil umframeftirspurn hafi verið eftir láninu og ákvað félagið því að auka lánsfjárhæðina úr 500 milljónum í 600 milljónir evra. Lánið var tekið í tengslum við fjármögnun Actavis á kaupum á bandaríska lyfjafyrirtækinu Amide Pharmaceutical en áætlað er að nýta lánið einnig til endurfjármögnunar á skammtíma- og langtímaskuldum félagsins.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×