Viðskipti innlent

Tilboð opnuð í dag

Tilboð í Símann verða opnuð klukkan eitt í dag og ef til vill aftur síðar í dag, ef einhver tilboðsgjafi hækkar boð sitt. Það geta þeir gert ef þeir eru innan við fimm prósent undir boði næsta bjóðanda. Löngu einkavæðingaferli Símans lýkur því í dag, ef viðunandi tilboð fæst, en í umræðunni er gjarnan miðað við um það bil sextíu milljarða króna. Samkeppniseftirlitið þarf líka að samþykkja hæsta tilboð, og gangi allt eftir, verður formlega skrifað undir söluna í næsta mánuði.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×