Sport

Strachan eyðilagður eftir risatap

Celtic beið afhroð í leik sínum gegn Artmedia frá Slóvakíu í 2. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar í gærkvöldi og tapaði 5-0. Flestir bjuggust við tiltölulega auðveldum sigri Celtic í leiknum og eru úrslitin einhver þau óvæntustu í sögu forkeppni Meistaradeildarinnar. Gordon Strachan, knattspyrnustjóri liðsins, lýsti deginum í gær sem þeim versta sem hann hefur upplifað á sínum ferli sem fótboltamaður eða þjálfari. "Ég er í sjokki. Leikmennirnir munu aldrei gleyma þessari frammistöðu. Við vorum niðurlægðir og ég ætla ekki að reyna að afsaka okkar leik. Nú verðum við einfaldlega að þjást saman," sagði Strachan og bætti við að hann teldi afar ólíklegt að liðið kæmist áfram, en síðari leikurinn fer fram í Skotlandi eftir viku.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×