Sport

Baros er alltof dýr fyrir Schalke

Milan Baros er ekki á leiðinni til þýska liðsins Schalke 04 eins og allt stefndi í þar sem Þjóðverjunum þykir verðmiði Liverpool á tékkneska framherjanum vera alltof hár. Evrópumeistarar Liverpool vilja fá 7 milljónir punda eða um 800 milljónir íslenskra króna fyrir Baros. "Það eru 95% líkur á því að ekkert verði af þessum kaupum," sagði framkvæmdastjórinn Rudi Assauer við þýska blaðið Bild en Schalke 04 endaði í öðru sæti á eftir Bayern Munchen í fyrra, bæði í Bundesligunni sem og í bikarnum. Knattspyrnustjóri Liverpool, Rafael Benitez, er víst tilbúinn að horfa á eftir Baros eftir að hafa keypt Peter Crouch frá Southampton en það verður ekki fyrir neina smáaura. Enska úrvalsdeildarliðið Aston Villa hefur þegar boðið fimm milljónir enskra punda í Milan Baros en því hafnaði Liverpool samstundis.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×