Sport

Markalaust í hálfleik á Anfield

Staðan í hálfleik í viðureign Liverpool og Kaunas í 2. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar er 0-0 en leikið er á Anfield. Leikurinn hófst kl. 18:45. Þetta er síðari leikur liðanna en Liverpool vann fyrri leikinn í Litháen 1-3. Liverpool hefur ráðið gangi leiksins í fyrri hálfleik en Steven Gerrard, Djibril Cisse og Jose Reina aðalmarkvörður eru allir á varamannabekknum. Sami Hyypia er fyrirliði Liverpool í leiknum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×