Viðskipti innlent

Samþykktu kaup Samskipa á Seawheel

Evrópsk Samkeppnisyfirvöld hafa samþykkt kaup Samskipa á breska skipafélaginu Seawheel, sem tilkynnt voru fyrr í sumar, sem og fyrirhugaða sameiningu Samskipa við starfsemi hollenska flutningafyrirtækisins Geest North Sea Line sem Samskip keyptu fyrr á árinu. Eftir kaupin á Seawheel eru Samskip með 36 skip í föstum áætlunarsiglingum sem flytja árlega um 1,1 milljón gámaeininga milli hafna í Evrópu. Starfsmenn félagsins eru um 1.550 talsins og áætluð velta á þessu ári um 58 milljarðar íslenskra króna.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×