Innlent

Árásarmaður í gæsluvarðhald

Maður sem réðist á fyrrum sambýliskonu sína og sló ítrekað í höfuðið með felgulykli síðasta sunnudag hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 20. september. Úrskurðurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Vesturlands í gær, en manninum er einnig gert að sæta geðrannsókn. Konan, sem er tæplega þrítug, hlaut verulega áverka af árásinni, en maðurinn komst óboðinn inn á heimili hennar. Hún náði að flýja upp á efri hæð hússins þar sem tvö börn þeirra sváfu og hringja á hjálp, en maðurinn fór af vettvangi. Hann var svo handtekinn og fluttur á geðdeild Landspítalans.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×