Innlent

Ófriður og umferð

Lögreglan í Keflavík fór í eitt útkall vegna heimilisófriðar og ölvunar aðfaranótt föstudags, en sagði föstudagsvaktina að öðru leyti hafa verið tíðindalitla. Þó var einn ökumaður tekinn fyrir að aka bíl eftir að hafa verið sviptur ökuréttindum og tveir ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur, að því er fram kom á vef lögreglunnar. Sá sem hraðar ók mældist að sögn lögreglu á 79 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 50 kílómetrar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×