Innlent

Skemmdarvarga leitað á Selfossi

Vegfarandi á Selfossi tilkynnti um eld í blaðabunka við aðalinngang Fjölbrautaskóla Suðurlands um miðnætti á sunnudagskvöld. Lögregla segir að fundist hafi eldspýta í blaðabunkanum og telur að kveikt hafi verið í. Tjón var óverulegt en vegna hitans kom sprunga í eina rúðu. Fyrr um kvöldið höfðu verið brotnar rúður í Vallaskóla við Sólvelli á Selfossi og telur lögregla ekki útilokað að þar hafi sömu skemmdarvargar verið á ferð. Þar bar lögreglu að garði um klukkan tíu um kvöldið, eftir að brothljóð höfðu heyrst, en greip í tómt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×