Innlent

Fangi kærir gæsluvarðhaldsúrskurð

Maður sem setið hefur í gæsluvarðhaldi í rúma fjóra mánuði fyrir að hóta og ráðast á prófessor í réttarlæknisfræði í mars, var í gær úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald, til 30. september. Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður mannsins, segir hann hafa kært úrskurðinn til Hæstaréttar. Maðurinn, sem er 34 ára gamall, sætir einnig ákæru, með öðrum 43 ára gömlum manni, fyrir að hafa um nokkurt skeið fram til nóvemberloka árið 2003 staðið að framleiðslu amfetamíns í söluskyni. Málin voru sameinuð í síðustu viku.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×