Innlent

Lögregla leitar brennuvargs

Lögreglan í Reykjavík svipast um eftir brennuvargi eftir ítrekaða íkveikju í iðnaðarhúsnæði við Fiskislóð, að morgni sunnudags og mánudags. Þá er talið líklegt að kveikt hafi verið í pappakössum sem geymdir voru í kyndiklefa í Melabúðinni aðfaranótt sunnudags. Aðfaranótt mánudags var maður handtekinn í miðbænum grunaður um að hafa kveikt í rusli í porti við skemmtistaðinn Pravda í Lækjargötu í Reykjavík. Sá var hins vegar í haldi lögreglu þegar aftur var kveikt í á Fiskislóðinni og því tæpast að verki þar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×