Viðskipti innlent

Halldór ráðinn framkvæmdastjóri

Halldór Jóhannsson viðskiptafræðingur verður næsti framkvæmdastjóri KEA. Stjórn félagsins ákvað á síðasta fundi sínum að ráða hann til starfa í stað Andra Teitssonar sem lætur af störfum. Halldór hefur unnið sem fjárfestingastjóri KEA frá í nóvember síðast liðnum. Þar áður var hann aðstoðarframkvæmdastjóri Kaldbaks og fyrir það aðstoðarkaupfélagsstjóri KEA.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×