Viðskipti innlent

Mikið flökt á gengi krónunnar

Greiningardeild Íslandsbanka telur líklegt að mikið flökt verði á gengi íslensku krónunnar næstu daga í kjölfar tilkynningar Seðlabankans um mikil gjaldeyriskaup á næstunni til að greiða erlendar skuldir ríkisins. Hún telur kaupin hafa áhrif til lækkunar en þó líklega aðeins til skamms tíma því útgáfa erlendra aðila á skuldabréfum í íslenskum krónum vegi á móti. Vísitala neysluverðs verður birt á mánudag og er þess vænst að verðbólgan fari yfir efri þolmörk Seðlabankans.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×