Sport

Don King ánægður með Khan

NordicPhotos/GettyImages
Umboðsmaðurinn umdeildi Don King átti ekki til orð til að lýsa hrifningu sinni á ungstirninu Amir Khan, eftir að hann vann sinn annan bardaga sem atvinnumaður um helgina. King líkti breska hnefaleikaranum við Sugar Ray Robinson. Hinn átján ára gamli Khan vann nokkuð auðveldan sigur á Baz Carey í Cardiff um helgina og Don King sparaði ekki stóru orðin frekar en venjulega. "Khan var stórkostlegur og hann minnir mig á Sugar Ray. Hann er kannski ekki kominn með líkamlega burði í að keppa við stóru nöfnin ennþá, en hann er nákvæmlega það sem hnefaleikarnir þurftu á þessu stigi og á eftir að verða frábær sigurvegari," sagði King. Miklar vonir eru bundnar við að Khan verði næsta stjarna Breta í hnefaleikum og margir vilja meina að hann verði einn allra besti boxari sögunnar.
Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×