Sport

Ronaldo í hóp United á ný

NordicPhotos/GettyImages
Portúgalski miðjumaðurinn Cristiano Ronaldo er kominn inn í leikmannahóp Manchester United á ný eftir fráfall föður hans á dögunum, en upphaflega var búist við að hann yrði í leyfi frá leiknum. United verður þó án fyrirliða síns Roy Keane, sem á við meiðsli að stríða. Þetta þýðir líklega að Alan Smith verði í hlutverki Keane á miðjunni í Evrópuleiknum við Villareal annað kvöld, en leikurinn fer fram á Spáni og er í hinum svokallaða "Dauðariðli" í Meistaradeildinni. Leikmannahópur Manchester United: Van der Sar, Howard, O'Shea, Brown, Ferdinand, Silvestre, Heinze, Fletcher, Scholes, Smith, Giggs, Rooney, Ronaldo, Richardson, Rossi, Van Nistelrooy, Pique, Park, Miller.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×