Innlent

Vill að ákæra í Baugsmáli standi

Fyrirtöku í Baugsmálinu, þar sem fjallað var átján ákæruliði sem dómendur í málinu hafa gert athugasemdir við, lauk nú fyrir stundu. Þar fór Jón H. Snorrason saksóknari ákæruvaldsins yfir þessa átján ákæruliði lið fyrir lið og tiltók fjölda dóma máli sínu til stuðnings. Hann krefst þess að ákæran standi. Verjendur sögðu að vísa þyrfti þessum átján ákæruliðum frá dómi eða málinu í heild. Eins sögðu þeir að ef ákæruliðunum átján yrði vísað frá þyrfti að gefa út nýja ákæru í málinu. Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur varðandi þennan hluta málsins verður felldur á þriðjudaginn í næstu viku.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×