Sport

Hálfleikur í Meistaradeildinni

NordicPhotos/GettyImages
Nú hefur verið flautað til hálfleiks í leikjunum átta sem eru á dagskrá í Meistaradeild Evrópu, en ekki hafa verið skoruð mörg mörk það sem af er. Barcelona náði forystu eftir aðeins þrettán mínútur gegn Werder Bremen í Þýskalandi og það var Deco sem skoraði markið. Þá hefur Udinese náð 1-0 forystu gegn Panathinaikos, en mark ítalska liðsins skoraði Vincenzo Iaquinta á 28. mínútu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×