Innlent

Slapp ótrúlega vel úr bílveltu

Ökumaður jeppa slapp ótrúlega lítið meiddur þegar hann missti stjórn á jeppa sínum á Strandarheiði á Reykjanesbraut laust fyrir klukkan sjö í gærkvöldi með þeim afleiðingum að bíllinn valt út af veginum. Ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, var fastur í flakinu og þurfti að kalla tækjabíl á vettvang til að klippa flakið utan af honum. Þrátt fyrir það reyndist hann aðeins minniháttar meiddur en jeppinn er gerónýtur eftir veltuna. Tildrög slyssins eru ókunn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×