Innlent

Grútur yfir gljáfægðan brúðarbíl

Glansinn hvarf heldur betur af gljáfægðum væntanlegum brúðarbíl þegar hann mætti vörubíl með grútarfarmi á Ólafsfjarðarvegi í gærkvöldi. Í sama mund rann hluti farmsins af vörubílnum með þeim afleiðingum að brúðarbíllinn varð löðrandi í grút og fitu og lagði af honum mikinn fnyk langar leiðir. Lögregla á Akureyri hafði uppi á vörubílnum og var málinu lent þannig að bílstjóri hans ábyrgist alhreinsun á brúðarbílnum þannig að hann verði brúðhjónununum til sóma eftir athöfnina á morgun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×