Innlent

Annríki hjá lögreglu í Hafnarfirði

stefán
Mikið var um að vera í Hafnarfirði í nótt og hafði lögregla í nógu að snúast. Fyrir utan venjulegt skemmtanahald voru tveir dansleikir. Annar þeirra var í Kaplakrika þar sem voru um 1500 manns. Eitthvað var um pústra í tengslum við ölvun í bænum þótt engin hafi meiðst alvarlega. Tveir sitja inni eftir nóttina. Þá voru fimm teknir við ölvun við akstur en alls hafa átta verið teknir ölvaðir undir stýri í umdæmi lögreglunnar í Hafnarfirði um helgina. Tveir þeirra höfðu lent í umferðaróhappi og einn var tekinn á 126 kílómetra hraða á Reykjanesbraut. Á Reykjanesbrautinni voru tveir teknir á miklum hraða, annar á 155 kílómetra hraða og hinn á 139.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×