Innlent

Enn hrynur grjót í Óshlíð

Lögreglunni í Bolungarvík barst í gærmorgun tilkynning um að grjóthnullungar hefðu fallið á veginn í Óshlíð í grennd við þann stað þar sem stór sprunga er efst í fjallsbrúninni á Óshyrnu. Nokkuð grjóthrun hefur verið þarna að undanförnu. Stórir steinar höfðu fallið á veginn utan við varnarnetið yst á hlíðinni. Þegar lögregla kom á vettvang var grjót á veginum og eins voru holur í honum eftir grjót sem hafði kastast áfram út fyrir veginn. Mildi má kalla að enginn varð fyrir grjóti en nokkur hundruð bifreiðar aka veginn dag hvern. Lögregla brýnir fyrir vegfarendum að fara með gát á þessum slóðum. Almannavarnanefnd Bolungaravíkur kemur saman strax eftir helgi til að ræða ástand mála.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×