Innlent

Braut tönn í lögreglumanni

Ungur maður sem sparkaði í andlit lögregluþjóns fyrir utan skemmtistaðinn Players í Kópavogi aðfaranótt sunnudags var látinn laus að loknum yfirheyrslum um miðjan dag í gær. Við árásina brotnaði tönn í lögregluþjóninum. Lögregla hafði verið kölluð til vegna ölvunar mannsins og óláta fyrir utan staðinn, en hann barðist um á hæl og hnakka þegar verið var að handtaka hann. Að sögn lögreglu í Kópavogi var hann látinn sofa úr sér í fangageymslu. Hann má nú búast við að mál hans fari sína leið í réttarkerfinu og hann verði ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×