Innlent

Hraðakstur á Faxabraut

Nokkur erill var hjá lögreglu á Akranesi aðfaranótt sunnudags en fyrr um kvöldið fór fram knattspyrnuhátíð ÍA sem lauk með balli með Stuðmönnum og Jónsa í svörtum fötum, að sögn lögreglu. Skemmtanahaldið fór þó vel fram, en kallaði á einhverja smásnúninga lögreglu. Einn var tekinn grunaður um ölvun við akstur og á laugardag voru tveir stöðvaðir fyrir hraðakstur á Faxabraut. Lögregla segir nokkuð hafa verið um hraðakstur innanbæjar, en fyrir dyrum er átak í að ná niður aksturshraða í bænum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×