Innlent

Hús rýmd vegna sprenginga

Gera átti litlar prufusprengingar í Gleiðarhjalla ofan Ísafjarðar í gær til að undirbúa aðgerðir í dag og á morgun til varnar grjóthruni sem náð gæti ofan í byggð. Að sögn lögreglu á Ísafirði verða hús á Urðarvegi rýmd í dag og á morgun frá níu að morgni og fram til klukkan þrjú síðdegis. Til stendur að sprengja í fjallinu og losa um grjót sem er þannig að lögun og stærð að við vissar aðstæður væri hætt við að það gæti oltið alla leið niður í byggð. Á miðvikudag og fimmtudag verður svo haldið áfram að sprengja, en þá verða rýmd hús á Hjallavegi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×