Innlent

Eldamennska fór úr böndum

Kveikt var í blaðagámi við Flókagötu í Reykjavík um miðjan dag í gær, en að sögn slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins var fljótgert að slökkva í honum. Aðfaranótt sunnudags fór slökkviliðið í tvö útköll, það fyra á þriðja tímanum í Vesturbæ Reykjavíkur en þar tilkynnti nágranni um reykskynjara í gangi. Húsráðandi reyndist svo vera heima, en eldamennska hafði farið úr böndunum hjá honum. Hann var aðstoðaður við að reykræsta íbúð sína. Um klukkan fimm í gærmorgun slökkti slökkvilið svo í bíl sem logaði í Mosfellsbæ.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×