Innlent

Einn með leiðindi á réttaballi

Einn gisti fangageymslu lögreglu á Blönduósi aðfaranótt sunnudags, en sá hafði að sögn lögreglu verið með leiðindi á réttaballi einn manna. Maðurinn var með óspektir og drykkjulæti. Allir aðrir munu hafa skemmt sér vel. Þá segir lögregla að á fimmta tug ökumanna hafi verið teknir fyrir of hraðan akstur í umdæminu frá því á föstudag og fram á sunnudagskvöld. Þótti lögreglu það nokkuð mikill afrakstur úr umferðareftirliti vegna hraðaksturs eina helgi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×