Sport

Helgi gerði 2 ára samning við Fram

Helgi Sigurðsson hefur gert tveggja ára samning við Fram. Helgi snýr því til síns gamla félags eftir rúman áratug í atvinnumennsku erlendis. Brynjar Jóhannesson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Fram, segir að Helgi komi til með að leika með Fram í 1. deild, nema ef til þess komi að hann verði lánaður. Brynjar segir það þó ekki líklegt. Framarar ætli sér að endurheimta sætið í Landsbankadeildinni, leikmennirnir vilja „leiðrétta þetta sjálfir“. Brynjar segir að 23 leikmenn hafi verið á launaskrá Fram í sumar, þar af fimm erlendir leikmenn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×