Innlent

Dómsmálaráðherra tjáir sig ekki

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra tjáir sig ekki um niðurstöðu Héraðsdóms í Baugsmálinu. Þetta tilkynnti starfsmaður dómsmálaráðuneytisins fréttastofunni þegar hún reyndi að ná tali af ráðherra í dag. Öllum fjörutíu ákærunum í Baugsmálinu var vísað frá í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun vegna verulegra annmarka. Ágallarnir á þeim átján ákæruliðum sem dómarar í málinu höfðu tiltekið með bréfi í lok ágúst þykja svo miklir að vísa þurfi málinu frá dómi. Í niðurstöðu úrskurðarins segir að þar sem ágallar eru á verulegum hluta ákærunnar sé ekki hjá því komist að vísa málinu frá í heild.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×